Aðrar vörur

KidsClin Cradle Cap

ÁHRIFARÍKT - ÞÆGILEGT - ÖRUGGT

KidsClin Cradle Cap er meðferðarsett við skóf í hársverði ungabarna. 

Skóf (e. infantile seborrhoeic dermatitis) er þegar gulleitt hrúður myndast, einkum í hársverði ungabarna. Um 50% nýbura fá skóf en það er algengast á fyrstu mánuðum ævinnar. Ástandið er ekki alvarlegt og venjulega tímabundið, einstaka sinnum getur getur sveppasýking myndast og/eða exem komið í skófina.

Meðferðarsettið inniheldur allt sem þarf til að meðhöndla skóf:

  • Serum í úðaformi
  • Bursta með svampi
  • Greiðu

Meðferðarsettið er einfalt í notkun og árangur er sýnilegur eftir fyrstu notkun.

Það meðhöndlar, fjarlægir og fyrirbyggir skóf í hársverði en er jafnframt milt fyrir húð barnsins og er án ilmefna og litarefna.

HVERNIG VIRKAR MEÐFERÐARSETTIÐ?

  1. Serum í úðaformi - leysir upp storknaða húðfeiti, minnkar rakatap gegnum húðina og myndar verndandi lag í hársvörð barnsins.
  2. Bursti - fjarlægir hart hrúður úr hársverðinum án þess að valda barninu óþægindum.
  3. Greiða - hjálpar að fjarlægja húðflyksur úr hári barna sem eru með mikið hár.

Úðið tveimur úðum af serum í lófann og nuddið því á skófina í hársverði barnsins. Nota skal svamphliðina á burstanum og nudda hársvörðinn varlega. Notið því næst bursta hliðina til að fjarlægja húðflyksurnar. Greiðuna má nota nokkrum sinnum til að fjarlægja húðflyksurnar úr hárinu.

INNIHALDSLÝSING:

Olía úr fræjum Borage Officinalis, skvalen, tókóferýl asetat (E-vítamín), olía úr fræjum Helianthus Annuus fræ, útdráttur úr laufum Rosmarinus Officinalis.

Sjá nánar

Hér getur þú keypt vöruna: