Decubal

Decubal Face Wash - 150ml

Decubal face wash er mild hreinsifroða fyrir þurra og viðkvæma húð sem hægt er að nota bæði kvölds og morgna. Hreinsifroðan hreinsar húðina á mildan en jafnframt áhrifaríkan hátt án þess að þurrka upp húðina og skilur hana eftir mjúka og hreina.
Fituinnihald: 0% og Ph-gildi 4,5.

Decubal face wash inniheldur rakagefandi glýserín sem verndar húðina og allantóín sem hreinsar mjúklega burt dauðar húðfrumur og hvetur til frumuendurnýjunar. Inniheldur einnig kamillu sem róar erta húð.

  • Mildur og rakagefandi andlitshreinsir
  • Hreinsar án þess að þurrka húðina
  • Inniheldur rakagefandi glýcerín
  • Inniheldur panthenól (B5-vítamín) sem nærir og mýkir
  • Inniheldur betaine sem róar og kemur í veg fyrir ertingu
  • Engin litarefni, ilmefni eða parabenar