Skip Navigation

Sæbrautinni lokað fyrir hjólreiðakeppni

Business
30 May 2014

Öflugasta hjólreiðafólk landsins mun etja kappi á Alvogen Midnight Time Trial hjólreiðakeppninni sem haldin verður að kvöldi 3. júlí nk. Keppt verður um titilinn hraðskreiðasti hjólreiðamaður Íslands 2014. Öflugir erlendir keppendur hafa boðað komu sína á mótið og munu keppa í þríþrautarflokki karla og kvenna. Sæbrautinni, einni helstu umferðaræð borgarinnar, verður lokað fyrir annarri umferð á meðan keppnin fer fram.

Keppt um titilinn hraðskreiðasti hjólreiðamaður Íslands - Mótið tileinkað réttindum barna

Öflugasta hjólreiðafólk landsins mun etja kappi á Alvogen Midnight Time Trial hjólreiðakeppninni sem haldin verður að kvöldi 3. júlí nk. Keppt verður um titilinn hraðskreiðasti hjólreiðamaður Íslands 2014. Öflugir erlendir keppendur hafa boðað komu sína á mótið og munu keppa í þríþrautarflokki karla og kvenna. Sæbrautinni, einni helstu umferðaræð borgarinnar, verður lokað fyrir annarri umferð á meðan keppnin fer fram. 

Í Alvogen Midnight Time Trial er keppt í götu- og þríþrautaflokki (16km og 32km) í kvenna og karlaflokki og veitt verða vegleg verðlaun fyrir þrjú efstu sætin í hverjum flokki. Lyfjafyrirtækið Alvogen er bakhjarl mótsins sem tileinkað er réttindum barna og munu öll skráningargjöld renna óskipt til UNICEF. Starfsmenn Alvogen um allan heim hafa einnig ákveðið að leggja samtökunum lið og um sjö milljónum króna verður úthlutað úr söfnunarsjóði Alvogen, Better Planet til UNICEF í tengslum við mótið.  

Rásmark er við Hörpu og þaðan er hjólað eftir Sæbraut að gatnamótum við Laugarnesveg og til baka að endamarki við Hörpu.  Snúið er við á keilum og keppnishringur er um 5,5 km langur.

Upplýsingar um skráningu má nálgast á www.alvogen.is en hún hefst kl.10:00 þann 3. júní nk. Fjöldi þátttakenda verður takmarkaður við 100 og skráningargjald er 3.500 krónur, sem rennur óskipt til UNICEF. Allir þátttakendur fá æfingabol og armband við afhendingu keppnisgagna sem má nálgast í Hörpu frá kl: 18:00 þann 3. júlí.

Nánar um Alvogen Midnight Time Trial

Á þríþrautarhjólum eru liggistýri, plötugjarðir og aerohjálmar leyfilegir en óheimilt er að nýta sér búnaðinn í götuhjólaflokki. Drafting er óheimilt og gilda reglur hjólreiðanefndar ÍSÍ um drafting. Hjálmaskylda er í keppninni og eru keppendur  á eigin ábyrgð. Keppt er að kvöldi 3. júlí næstkomandi og verður keppni lokið fyrir miðnætti. Nánari upplýsingar um tímasetningar verða gefnar út þegar nær dregur.

  • Götuhjólaflokkur hjólar þrjá hringi (16 km)
  • Þríþrautarflokkur hjólar sex hringi (32 km)
  • Verðlaunaafhending fer fram í Hörpu að móti loknu

Við leitum að 100 hröðustu hjólreiðamönnum og konum landsins

  • Keppendur þurfa að vera skráðir í reiðhjólafélag og vera í góðu líkamlegu formi
  • Komi til niðurskurðar verður horft til jafns kynjahlutfalls og svipaðs fjölda í götu- og þríþrautahjólaflokki
  • Fimm efstu keppendur í Alvogen Midnight Time Trial 2013 í hverjum flokki hafa forgang við skráningu, alls 20 keppendur
  • Fimm efstu keppendur í Time Trial mótum ársins 2014 fá einnig forgang við skráningu