Zadenvi
ZADENVI inniheldur denosumab, prótein (einstofna mótefni) sem hefur áhrif á virkni annars próteins, til meðferðar við beintapi og beinþynningu. Meðferð með denosumabi styrkir bein og dregur úr líkum á beinbrotum. Denosumab er einstofna mannamótefni (IgG2) sem beinist að og binst með mikilli sækni og sértækni við RANKL, kemur í veg fyrir virkjun viðtaka hans, RANK, á yfirborði forstigs-beinátfrumna og beinátfrumna. Fyrirbygging RANK/RANKL tengingarinnar hamlar myndun beinátfrumna, virkni þeirra og afkomu og dregur þannig úr endurupptöku beins í þéttu beini og frauðbeini.
Ábendingar:
- Meðferð við beinþynningu eftir tíðahvörf hjá konum og karlmönnum sem eru í aukinni hættu á beinbrotum. Denosumab dregur marktækt úr hættu á samfallsbrotum í hryggjarliðum, öðrum beinbrotum og mjaðmarbrotum hjá konum eftir tíðahvörf.
- Meðferð við beintapi sem tengist hormónabælingu hjá karlmönnum með blöðruhálskirtilskrabbamein sem eru í aukinni hættu á beinbrotum. Hjá karlmönnum með blöðruhálskirtilskrabbamein sem fá hormónabælandi meðferð dregur ZADENVI marktækt úr hættu á samfallsbrotum í hryggjarliðum.
- Meðferð við beintapi sem tengist langtíma altækri meðferð með sykursterum hjá fullorðnum sjúklingum sem eru í aukinni hættu á beinbrotum.
Frábendingar:
- Ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna.
- Blóðkalsíumlækkun.
Markaðsleyfishafi: Zentiva k.s.
Ítarupplýsingar
- Tegund lyfs
- M05B - Lyf sem hafa áhrif á beinbyggingu og beinmyndun (mineralization)
- Virkt innihaldsefni
- Denosumabum INN
- Lyfjaform
- Stungulyf, áfyllt sprauta
- Styrkleiki
- 60 mg/ml
- Magn
- 1 ml x 1
Upplýsingar um aukaverkanir, milliverkanir, varnaðarorð og önnur mikilvæg atriði má nálgast í sérlyfjaskrá
ZAD.R.A.2026.0001.01