Yimmugo

Yimmugo inniheldur venjulegt immúnóglóbúlín úr mönnum (IVIg). Þetta lyf inniheldur mótefni úr mönnum, sem eru einnig til staðar í blóði þínu. Mótefni geta hjálpað líkamanum að koma í veg fyrir sýkingar og sigrast á þeim.

Ábendingar:

Uppbótarmeðferð hjá fullorðnum, börnum og unglingum (0–18 ára) við:

  • frumkomnu ónæmisbrestsheilkenni (primary immunodeficiency syndromes, PID) með skerta mótefnamyndun
  • síðkomnum ónæmisbresti (secondary immunodeficiencies, SID) hjá sjúklingum með alvarlegar eða endurteknar sýkingar, þar sem meðferð gegn örverum hefur ekki áhrif og sem eru annað hvort með staðfestan sértækan mótefnabrest (proven specific antibody failure, PSAF)* eða IgG-gildi <4 g/l í sermi.

*PSAF = vangeta til að framkalla a.m.k. 2-falda hækkun á IgG-mótefnatítrum gegn pneumókokka-fjölsykrum og fjölpeptíð-mótefnavakabóluefnum

Ónæmisstýring hjá fullorðnum, börnum og unglingum (0–18 ára) við:

  • frumkominni ónæmisblóðflagnafæð (ITP) hjá sjúklingum sem eru í mikilli blæðingarhættu, eða fyrir aðgerð til þess að leiðrétta blóðflagnafjölda
  • Guillain-Barré heilkenni
  • Kawasaki-sjúkdómi (ásamt asetýlsalisýlsýru, sjá kafla 4.2.)
  • langvinnum afmýlandi bólgufjöltaugakvilla (CIDP)
  • fjölhreiðra hreyfitaugakvilla (multifocal motor neuropathy, MMN)

Frábendingar:

  • Ofnæmi fyrir virka efninu (immúnóglóbúlíni úr mönnum) eða einhverju hjálparefnanna.
  • Sjúklingar með sértækan IgA-skort sem myndað hafa mótefni gegn IgA, þar sem gjöf lyfs sem inniheldur IgA getur valdið bráðaofnæmi.

Markaðsleyfishafi: Biotest Pharma GmbH

Ítarupplýsingar

Tegund lyfs
J06B - Ónæmisglóbúlín
Virkt innihaldsefni
Venjulegt immúnóglóbúlín úr mönnum (IVIg)
Lyfjaform
Innrennslislyf, lausn
Styrkleiki
100 mg
Magn
50, 100 og 200 ml

Upplýsingar um aukaverkanir, milliverkanir, varnaðarorð og önnur mikilvæg atriði má nálgast í www.serlyfjaskra.is

YIM.R.A.2026.0001.01

Pakkningar

VörunúmerStyrkurMagn
063559100 mg/ml50 ml
466111100 mg/ml100 ml
498613100 mg/ml200 ml