Wortie - Meðferð við vörtum og fótvörtum

Wortie Liquid

Wortie Liquid inniheldur einfalda og áhrifaríka lausn til að fjarlægja vörtur og fótvörtur, auk 18 vatnsheldra plástra sem auka virkni vökvans, koma í veg fyrir smit og vernda svæðið ef það er viðkvæmt.

Pensillinn er mjög nákvæmur og er því auðvelt að meðhöndla litlar vörtur án þess að skaða heilbrigða húð kringum vörtuna. Hentar börnum með viðkvæma húð.

  • Fljótleg og sársaukalaus meðferð
  • Lausnin þornar á 30 sekúndum!
  • Hentar fyrir 4 ára og eldri

INNIHALDSLÝSING:

  • 30% glycolic acid
  • 10% trichloroacetic acid (TCAA)
  • 60% alcohol denat

Þessi einstaka samsetning af tveimur sýrum gerir það að verkum að erting vegna meðferðarinnar er minni án þess þó að hafa áhrif á árangur meðferðarinnar. Glycolic sýran fjarlægir efstu lögin af vörtunni og gerir það að verkum að hægt er að nota minni styrk af TCAA. TCAA veldur djúpri flögnun. Alcohol denat hefur þau áhrif að lausnin þornar á nokkrum sekúndum og fer því fljótt inn í sýkta húðina og lekur ekki á heilbrigða húð.

NOTKUNARLEIÐBEININGAR:

  1. Sýkt svæði þvegið með volgu vatni, sápu og þurrkað vel.
  2. Þunnt lag af Wortie vökva sett á vörtuna og látið þorna. Þú skalt passa að vökvinn fari bara á vörtuna en ekki á heilbrigða húð.
  3. Meðfylgjandi plástur settur yfir vörtuna. Got er að hafa plásturinn á í a.m.k. 4 klst. en mest 24 klst.
  4. Meðhöndla skal tvisvar í viku þar til vartan er horfin.

Mikilvægt er að fylgja leiðbeiningum vandlega. Kærulaus notkun getur valdið bruna eða ertingu á heilbrigðri húð eða leitt til varanlegra skemmda á efsta lagi húðarinnar.

Þú getur keypt vöruna hér: