wortie
Wortie Freeze Pro
Wortie Freeze Pro er frystipenni sem byggir á sömu frystitækni og læknar nota.
Hann býður upp árángursríka og hraðvirka meðferð til að fjarlægja vörtur og fótvörtur með því að frysta þær á beinan og nákvæman hátt, sem verður til þess að vartan eða fótvartan hverfur innan
10-14 daga, yfirleitt eftir eina meðferð en þá er ný, heilbrigð húð búin að myndast undir. Engin sjálfsmeðferð er árángursríkari og hraðvirkari.
- Frystipenni sem meðhöndlar erfiðustu vörturnar
- Auðvelt í notkun, öruggt og árangursríkt
- Einstök carbon freeze tækni
- Koltvísýringur myndar ísingu á oddi pennans sem verður nógu kaldur til að fara niður í rót vörtunnar
- Ein meðferð yfirleitt nóg
- Hentar fyrir 4 ára og eldri
- Geymist í kæli eftir fyrstu notkun, ekki frysti
- Lækningatæki – klínískt sönnuð virkni
Notkunarleiðbeiningar:
Skref 1 - Undirbúningur: snúa og smella gegnsæju hettunni. Snúið hvíta hluta pennans í heilan hring í áttina sem örin bendir þar til þið heyrið háan smell. Snúið þétt til að rjúfa innra innsiglið.
Aðeins þarf að fylgja þessu skrefi fyrir fyrstu notkun.
Skref 2 - Virkja pennan: setja á flatt yfirborð og halda niðri í 7 sek.
Skref 3 – Athuga: fjarlægja gegnsæju hettuna og athuga ísingu. Ef hvít ísing myndast á oddi pennans skal nota hann strax með því að halda áfram á skref 4: Meðhöndla.
Ef þið sjáið ekki hvíta ísingu, ísingin datt af eða ísingin er föst í gegnsæju hettunni, endurtakið skref 2: Virkja.
Skref 4 – Meðhöndla: Ýtið ísingunni þétt á vörtuna og haldið í 15 sek á þunnri húð (t.d hendur og fingur, tær og hlið fóta). 40 sek á þykkari húð/sigg (iljar). Notið klukku til viðmiðunar.
Eftir meðferð: Setjið gegnsæju hettuna aftur á pennan og setjið í kæli í upprunalegum umbúðum (þ.m.t fylgiseðil). Setjið ekki inn í frysti.
Yfirleitt fer vartan eftir eina meðferð. Það gæti þurft tvær meðferðir ef vartan er stór eða gömul, sérstaklega á fótum. Ef vartan er ekki horfin eftir 14 daga skaltu endurtaka meðferðina
Tips. Til að ná sem bestum árangri við meðhöndlun á fótvörtu, settu fótinn í volgt vatn í 10 mínútur, þjalið burt harða húð og þurrkið vel fyrir meðferð.
Ekki nota Wortie Freeze Pro:
- Á börn undir 4 ára
- Á andlit, nára, kynfæri, hársvörð eða slímhúð
- Á manneskju með sykursýki eða blóðrásar- eða blóðtappa vandamál
- Ef þú ert ekki viss um að þetta sé varta
Varðúðarráðstafanir:
- Aðeins til útvortis notkunar
- Ekki nota lengur en í 15 sek á vörtu á þunnri húð og 40 sek á vörtu sem er á þykkari húð/sigg
- Pennan á að nota af fullorðnum við meðferð á börnum
Hugsanlegar aukaverkanir:
- Blöðrur í kringum meðhöndlaða svæðið
- Minniháttar brunasár og öramyndun
- Húðin missir lit - aflitun húðar
- Tímabundin truflun á tilfinningu, doði
Lesið fylgiseðilinn vandlega fyrir notkun
WOR.PR.003.01