Teriflunomid Zentiva

Teriflunomid Zentiva inniheldur virka efnið teriflúnómíð sem er ónæmistemprandi lyf sem dregur úr áhrifum ónæmiskerfsins á taugakerfið.

Teriflúnómíð er ónæmistemprandi lyf með bólgueyðandi eiginleika sem hamlar sértækt og afturkræft hvatberaensíminu díhýdróorótat-dehýdrógenasa (DHO-DH), sem tengist verkunarlega öndunarkeðjunni. Hömlunin leiðir til þess að teriflúnómíð dregur yfirleitt úr fjölgun frumna í hraðri skiptingu sem eru háðar nýmyndun pýrimídíns til að fjölga sér. Nákvæm verkun teriflúnómíðs við meðferð MS er ekki að fullu þekkt, en þetta er háð fækkun eitilfruma.

Ábendingar:

Teriflunomid Zentiva er ætlað til meðferðar hjá fullorðnum og börnum 10 ára og eldri, við kastaformi heila- og mænusiggs (MS).

Frábendingar:

  • Ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna.
  • Alvarlega skert lifrarstarfsemi (Child-Pugh flokkur C).
  • Þungaðar konur, eða konur á barneignaraldri sem ekki nota örugga getnaðarvörn á meðan á meðferð með teriflúnómíði stendur og eftir að henni lýkur, á meðan plasmaþéttni er hærri en 0,02 mg/l.
  • Útiloka verður þungun áður en meðferð hefst.
  • Konur með barn á brjósti.
  • Ónæmisbrestur, t.d. alnæmi.
  • Verulega skert beinmergsstarfsemi eða verulegt blóðleysi, hvítfrumnafæð, daufkyrningafæð eða blóðflagnafæð.
  • Sjúklingar með alvarlega, virka sýkingu mega ekki nota lyfið fyrr en sýkingin er gengin til baka.
  • Sjúklingar með alvarlega skerta nýrnastarfsemi, sem eru í skilunarmeðferð, mega ekki nota lyfið, þar sem klínísk reynsla hjá þessum sjúklingahópi er ekki nægileg.
  • Alvarlegur skortur á próteini í blóði, t.d. ef um er að ræða nýrungaheilkenni.

Markaðsleyfishafi: Zentiva k.s.

Ítarupplýsingar

Tegund lyfs
L04A - Ónæmisbælandi lyf
Virkt innihaldsefni
Teriflunomidum INN
Lyfjaform
Filmuhúðuð tafla
Styrkleiki
14 mg
Magn
28 stk.

Upplýsingar um aukaverkanir, milliverkanir, varnaðarorð og önnur mikilvæg atriði má nálgast í sérlyfjaskrá

TER.R.A.2026.0001.01
VörunúmerStyrkurMagn
42914314 mg28 stk.