Sitagliptin Zentiva ApS

Sitagliptin Zentiva ApS inniheldur virka efnið sitagliptín sem tilheyrir flokki lyfja sem kallast DPP-4 hemlar (dipeptílpeptíðasa 4 hemlar) og lækka blóðsykursgildi hjá fullorðnum sjúklingum með sykursýki af tegund 2.

Þetta lyf hjálpar til við að auka insúlínmagn sem líkaminn framleiðir eftir máltíð og dregur úr sykrinum sem líkaminn framleiðir sjálfur.

Ábendingar:

Sitagliptin Zentiva ApS er ætlað til að bæta stjórnun á blóðsykri hjá fullorðnum sjúklingum með sykursýki af tegund 2:

sem einlyfjameðferð:

  • hjá sjúklingum þegar ekki næst viðunandi stjórn á blóðsykri með mataræði og líkamsþjálfun eingöngu og hjá þeim þar sem metformín er ónothæft vegna frábendinga eða óþols.

sem samsett tveggja lyfja meðferð til inntöku, samhliða:

  • metformíni þegar ekki næst viðunandi stjórn á blóðsykri með mataræði og líkamsþjálfun auk meðferðar með metformíni eingöngu.
  • súlfonýlúrealyfi þegar ekki næst viðunandi stjórn á blóðsykri með mataræði og líkamsþjálfun auk meðferðar með stærsta mögulega skammti af súlfonýlúrealyfi eingöngu, og metformín er ónothæft vegna frábendinga eða óþols.
  • efnum sem örva sértæka kjarnaviðtaka (peroxisome proliferator-activated receptor gamma, (PPARγ örvar)) (þ.e. thiazolidíndíón lyf) þegar notkun á PPARγ örva er viðeigandi og ekki næst viðunandi stjórn á blóðsykri með mataræði og líkamsþjálfun auk meðferðar með PPARγ örva eingöngu.

sem samsett þriggja lyfja meðferð til inntöku, samhliða:

  • súlfonýlúrealyfi og metformíni þegar ekki næst viðunandi stjórn á blóðsykri með mataræði og líkamsþjálfun auk tvíþættrar meðferðar með þessum lyfjum.
  • PPARγ örva og metformíni, þegar notkun á PPARγ örva er viðeigandi og þegar ekki næst viðunandi stjórn á blóðsykri með mataræði og líkamsþjálfun auk meðferðar með báðum þessum lyfjum.

Einnig má nota Sitagliptin Zentiva ApS sem viðbótarmeðferð með insúlíni (með eða án metformíns) þegar mataræði og líkamsþjálfun auk stöðugs skammts af insúlíni leiðir ekki til viðunandi stjórnunar á blóðsykri.

Frábendingar:

Ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna

Markaðsleyfishafi: Zentiva k.s.

Ítarupplýsingar

Tegund lyfs
A10B - Blóðsykurslækkandi lyf, önnur en insúlín
Virkt innihaldsefni
Sitagliptinum INN fosfat mónóhýdrat
Lyfjaform
Filmuhúðaðar töflur
Styrkleiki
25, 50 og 100 mg
Magn
98 stk.

Upplýsingar um aukaverkanir, milliverkanir, varnaðarorð og önnur mikilvæg atriði má nálgast í sérlyfjaskrá

SIA.R.A.2026.0001.01
VörunúmerStyrkurMagn
12974325 mg98 stk.
46592550 mg98 stk.
372005100 mg98 stk.