Quetiapin Alvogen / Quetiapin ratiopharm

Quetiapin Alvogen / Quetiapin ratiopharm inniheldur virka efnið quetiapin. Það tilheyrir flokki lyfja sem nefnast geðrofslyf. Quetiapin er óhefðbundið geðrofslyf. Quetiapin og virka umbrotsefnið í plasma hjá mönnum, norquetiapin, milliverka við ýmsa viðtaka taugaboðefna. Quetiapin og norquetapin hafa sækni í serótónínviðtaka (5HT2) og dópamín D1 og D2 viðtaka í heila. Þessi samsetning á viðtakablokkun með meiri sækni í 5HT2 en D2 viðtaka er talin eiga þátt í klínískt sefandi eiginleikum quetiapins og lágri tíðni utanstrýtu (extrapyramidal) aukaverkana samanborið við dæmigerð geðrofslyf

Ábendingar:

Quetiapin er ætlað sem:

  • Meðferð við geðklofa.
  • Meðferð við geðhvarfasýki: 
    - Meðferð við miðlungi miklum til alvarlegum oflætislotum í geðhvarfasýki.
    - Meðferð við alvarlegum þunglyndislotum í geðhvarfasýki.
    - Til að fyrirbyggja endurkomu oflætis- eða þunglyndislotu hjá sjúklingum með geðhvarfasýki sem hafa áður svarað meðferð með quetiapini.
  • Viðbótarmeðferð við alvarlegum þunglyndislotum hjá sjúklingum með alvarlegt þunglyndi (Major Depressive Disorder [MDD]) sem ekki hafa svarað nægilega vel meðferð við þunglyndi með einu lyfi. Áður en meðferð hefst skulu læknar hafa öryggi notkunar quetiapins í huga.

Frábendingar: Ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna.

Markaðsleyfishafi: Alvogen ehf.

Ítarupplýsingar

Tegund lyfs
N05A -GEÐROFSLYF (ANTIPSYCHOTICS)
Virkt innihaldsefni
Quetíapín
Lyfjaform
Forðatöflur
Styrkleiki
50, 200, 300, 400 mg
Magn
100 stk.

Upplýsingar um aukaverkanir, milliverkanir, varnaðarorð og önnur mikilvæg atriði má nálgast í sérlyfjaskrá

QUE.R.2023.0001.03

Pakkningar

VörunúmerStyrkurMagn
03911750 mg100 stk
430127200 mg100 stk
114989300 mg100 stk
137635400 mg100 stk