Progesterone Alvogen
Progesterone inniheldur virka efnið progesterone. Þetta lyf inniheldur prógesterón sem er náttúrulegt kvenhormón sem framleitt er í líkamanum. Þetta lyf verkar með því að stilla hormónajafnvægið í líkamanum. Þetta lyf er hormónameðferð með prógestógeni.
Ábendingar:
Progesterone Alvogen 100 mg er ætlað til notkunar hjá fullorðnum konum.
Til inntöku:
- Truflun á tíðahring vegna prógesterónskorts, einkum óreglulegar tíðablæðingar.
- Samhliða hormónauppbótarmeðferð (hormone replacement therapy) með estrógeni hjá konum eftir tíðahvörf með óskaddað leg.
Notkun í leggöng:
- Aðstoð við gulbússtig fósturvísa sem þáttur í frjósemismeðferð.
- Fyrirbyggjandi gegn fyrirburafæðingu hjá konum sem ganga með einbura og eru með stuttan legháls (≤25 mm við ómskoðun á miðri meðgöngu) með eða án sögu um fyrirburafæðingu án fyrirvara.
Frábendingar:
Ekki má nota lyfið ef eitthvað af eftirfarandi á við:
- Ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna
- Blæðing frá leggöngum af óþekktum orsökum
- Gula
- Alvarlega skert lifrarstarfsemi
- Æxli í lifur
- Grunur um eða staðfest æxlismyndun í brjóstum eða kynfærum
- Bláæðabólga með segamyndun
- Segarekssjúkdómar eða saga um slíka sjúkdóma
- Heilablæðing
- Purpuraveiki (porfýría)
- Dulið fósturlát
- Ótímabært rof á himnum á meðgöngu
- Ef um er að ræða frábendingu sem tengist estrógeni þegar Progesterone Alvogen er notað í hormónauppbótarmeðferð ásamt estrógeni
Markaðsleyfishafi: Alvogen ehf.
Ítarupplýsingar
- Tegund lyfs
- G03D - Prógestógen
- Virkt innihaldsefni
- Progesteronum
- Lyfjaform
- Mjúkt hylki
- Styrkleiki
- 100 mg
- Magn
- 90 stk.
Upplýsingar um aukaverkanir, milliverkanir, varnaðarorð og önnur mikilvæg atriði má nálgast í sérlyfjaskrá
PRO.R.A.2026.0004.01