Piperacillin/Tazobactam Antibiotice
Piperacillin/Tazobactam Antibiotice inniheldur virku efnin piperacillinum og tazobactamum. Piperacillín tilheyrir flokki lyfja sem kallast „breiðvirk pensillínsýklalyf“. Það getur drepið margar tegundir baktería. Tazóbaktam getur komið í veg fyrir að sumar ónæmar bakteríur lifi af áhrif píperacillíns. Þetta þýðir að fleiri tegundir baktería drepast þegar píperacillín og tazóbaktam eru gefin saman.
Ábendingar:
Piperacillin/Tazobactam Antibiotice er ætlað til meðferðar við eftirfarandi sýkingum hjá fullorðnum og börnum eldri en 2 ára:
Fullorðnir og unglingar
- Alvarleg lungnabólga, þ.m.t. lungnabólga sem smitast hefur á sjúkrahúsi og í tengslum við notkun öndunarvélar
- Flóknar þvagfærasýkingar (þ.m.t. nýrna- og skjóðubólga)
- Flóknar sýkingar í kviðarholi
- Flóknar sýkingar í húð og mjúkvef (þ.m.t. sýkingar í fótum vegna sykursýki)
Til meðferðar á sjúklingum með blóðsýkingu sem kemur fram í tengslum við eða tengist hugsanlega einhverri af ofangreindum sýkingum.
Piperacillin/Tazobactam Antibiotice má nota við meðferð sjúklinga með daufkyrningafæð og hita sem grunur leikur á að sé vegna bakteríusýkingar.
Athugið: Ekki er mælt með meðferð hjá fullorðnum gegn blóðsýkingum vegna E. coli og K. Preumoniae (ónæm fyrir ceftríaxóni) sem framleiða breiðvirkan beta-laktamasa.
Börn 2 til 12 ára
- Flóknar sýkingar í kviðarholi
Piperacillin/Tazobactam Antibiotice má nota til meðferðar hjá börnum með daufkyrningafæð og hita sem grunur leikur á að sé vegna bakteríusýkingar.
Hafa skal hliðsjón af opinberum leiðbeiningum varðandi viðeigandi notkun sýklalyfja
Frábendingar:
- Ofnæmi fyrir virku efnunum, einhverju öðru penisillín-lyfi eða einhverju hjálparefnanna.
- Saga um bráð og alvarleg ofnæmisviðbrögð við öðrum beta-laktam lyfjum (t.d. sefalósporíni, mónóbaktami eða karbapenemi).
Markaðsleyfishafi: Antibiotice SA
Ítarupplýsingar
- Tegund lyfs
- J01CR - Blöndur penicillína, þ.m.t. beta-laktamasa hemlar
- Virkt innihaldsefni
- Piperacillinum og Tazobactamum
- Lyfjaform
- Innrennslisstofn, lausn
- Styrkleiki
- 4g/0,5g
- Magn
- 10 hettuglös
Upplýsingar um aukaverkanir, milliverkanir, varnaðarorð og önnur mikilvæg atriði má nálgast í sérlyfjaskrá