Montelukast Alvogen
Montelukast Alvogen inniheldur virka efnið montelúkastnatríum. Montelukast Alvogen er leukotríenviðtaka-blokki, sem hamlar áhrifum efna sem nefnast leukotríen. Leukotríen valda þrota og þrengingu í öndunarveginum. Með blokkun leukotríena dregur Montelukast Alvogen úr astmaeinkennum og hjálpar við að hafa stjórn á astma.
Ábendingar:
Montelukast Alvogen er ætlað til meðferðar við astma sem viðbótarmeðferð hjá börnum og unglingum frá 6 til 14 ára sem hafa vægan eða miðlungsmikinn viðvarandi astma, þegar meðferð með innúðabarksterum er ekki fullnægjandi og þegar notkun stuttverkandi beta-örva „eftir þörfum” veitir ekki fullnægjandi klíníska meðferð við astma.
Montelukast Alvogen er einnig meðferðarkostur, í stað lágskammta innúðabarkstera, fyrir 6 til 14 ára sjúklinga með vægan viðvarandi astma sem hafa ekki nýlega sögu um alvarleg barksterakrefjandi astmaköst, og hafa sýnilega ekki getað notað innúðabarkstera.
Montelukast Alvogen er einnig ætlað til fyrirbyggjandi meðferðar á astma fyrir 6 til 14 ára sjúklinga þegar aðallega er um berkjusamdrátt við áreynslu að ræða.
Frábendingar:
Ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna.
Markaðsleyfishafi: Alvogen ehf.
Ítarupplýsingar
- Tegund lyfs
- R03D - Önnur altæk (systemic) lyf við teppusjúkdómum í öndunarvegi
- Virkt innihaldsefni
- Montelukastum natríum
- Lyfjaform
- Tuggutafla
- Styrkleiki
- 5 mg
- Magn
- 98 stk.
Upplýsingar um aukaverkanir, milliverkanir, varnaðarorð og önnur mikilvæg atriði má nálgast í sérlyfjaskrá