Montelukast Alvogen

Montelukast Alvogen inniheldur virka efnið montelúkastnatríum. Montelukast Alvogen er leukotríenviðtaka-blokki, sem hamlar áhrifum efna sem nefnast leukotríen. Leukotríen valda þrota og þrengingu í öndunarveginum og geta einnig valdið ofnæmiseinkennum. Með blokkun leukotríena dregur Montelukast Alvogen úr astmaeinkennum og hjálpar við að hafa stjórn á astma og dregur úr einkennum árstíðabundins ofnæmis (einnig þekkt sem árstíðabundin ofnæmisbólga í nefi).

Ábendingar:

Montelukast Alvogen er ætlað til meðferðar við astma sem viðbótarmeðferð hjá sjúklingum sem hafa vægan eða miðlungsmikinn viðvarandi astma, þegar meðferð með innúðabarksterum er ekki fullnægjandi og þegar notkun stuttverkandi beta-örva „eftir þörfum” veitir ekki fullnægjandi klíníska meðferð við astma. Hjá astmasjúklingum sem geta notað Montelukast Alvogen getur lyfið einnig dregið úr einkennum árstíðabundinnar ofnæmisbólgu í nefi.

Montelukast Alvogen er einnig ætlað til fyrirbyggjandi meðferðar á astma þegar aðallega er um berkjusamdrátt við áreynslu að ræða.

Frábendingar:

Ofnæmi fyrir virka efninu, soja eða jarðhnetum, eða einhverju hjálparefnanna

Markaðsleyfishafi: Alvogen ehf.

Ítarupplýsingar

Tegund lyfs
R03D - Önnur altæk (systemic) lyf við teppusjúkdómum í öndunarvegi
Virkt innihaldsefni
Montelukastum natríum
Lyfjaform
Filmuhúðuð tafla
Styrkleiki
10 mg
Magn
98 stk.

Upplýsingar um aukaverkanir, milliverkanir, varnaðarorð og önnur mikilvæg atriði má nálgast í sérlyfjaskrá

MOT.R.A.2026.0002.01
VörunúmerStyrkurMagn
47683110 mg98 stk.