Locobase

Locobase Itch Relief Coolmousse 100 ml

Kælandi froða fyrir þurrk, ertingu og kláða í húð

Locobase Itch Relief Coolmousse er kælandi froða sem er sérstaklega þróuð til að slá hratt á ertingu og kláða í húð.
Froðan inniheldur mild innihaldsefni eins og Aloe Barbadensis þykkni og glýserín sem róar húðina og veitir henni raka.

Kláðastillandi froðan má fara á allan líkamann, líka andlit og hentar fyrir alla fjölskylduna, jafnvel börn frá 3 mánaða aldri.
Froðuna má nota eins oft og þörf er á.

Áferðin er létt, froðan frásogast hratt inn í húðina og klístrast ekki.

- Veitir strax kælandi og róandi áhrif á húðina

- Frásogast hratt, klístrast ekki

- Hentar allri fjölskyldunni, líka börnum

- Ilmefnalaust

- Vegan

- Virkni prófuð af húðsjúkdómalæknum