iWHITE

iWHITE Supreme Whitening Toothpaste

Árangursríkt hvíttunar tannkrem sem er byggt á örperlu tækni (micropearl technology) með virkum efnum sem hlutleysa bletti á tönnum. Tannkremið vinnur á yfirborði tanna og hvíttar bletti með virkri hvíttunarformúlu fyrir daglega notkun.

Virk örperlu tækni með virkum efnum sem hlutleysa bletti
Nýstárleg tækni sem gerir virkum efnum kleift að hjúpa og vernda tennurnar. Þessi tækni losar markvisst virku efnin í tannkreminu og þegar þú burstar tennurnar þá losna virku efnin beint á glerunginn. Í iWhite Supreme tannkreminu eru örperlur sem innihalda virku efnin pýrófosföt sem hlutleysa bletti á tönnum. Þessi virku efni mynda verndandi himnu á tönnunum og hjálpa þér að koma í veg fyrir bletti á tönnum.

Virk hvíttun byggð á "PAP-iWHITE"
PAP er ný áhrifarík tækni fyrir hvíttun og djúphreinsun tanna. Klínískar rannsóknir sýna að PAP er örugg fyrir glerunginn og tannholdið. PAP virkar eingöngu á litablettina sem leiðir til öflugrar djúpreinsunar og hvítari tanna. PAP hjálpar einnig til við að bæla vöxt baktería í munni og kemur í veg fyrir að skán myndist á tönnum.

Styrkir og verndar
iWHITE Supreme hvíttunar tannkremið inniheldur sterkar flúorjónir sem hjálpa við að endurkalka glerunginn og koma í veg fyrir að holur myndist.

Leiðbeiningar:
Til að ná sem bestum árangri skaltu bursta tennurnar eftir hverja máltíð, að minnsta kosti tvisvar á dag eða samkvæmt ráðleggingum tannlæknis.

ATH: Ekki mælt með fyrir börn yngri en 12 ára. Ekki gleypa tannkremið. Notaðu einungis skv. leiðbeiningum. Inniheldur natríumflúoríð (1450 ppm F-). Hvíttar eingöngu náttúrulegar tennur. Hætta skal meðferð ef þú finnur fyrir verkjum eða óþægindum. Ekki nota vöruna ef þú ert með ofnæmi fyrir einhverju innihaldsefnanna. Forðist snertingu við augu. Geymist á þurrum og svölum stað undir 25°C, fjarri hita og sólarljósi.

Hér getur þú keypt vöruna: