Hitapokar

Hitapoki - Huggler

Hugglerinn elskar dagana sem þú vilt helst gleyma. Hann veitir hlýju og vellíðan við tíðarblæðingar. 1 lítra hitapoki með prjónuðu hulstri í fullkomnri stærð sem eykur þægindi og vellíðan.

Notkun: Þegar vatnið er sett í hitapokann skal ekki hafa það sjóðandi heitt né skal fylla pokann alveg. Gott er að miða við að fylla 2/3 hluta pokans. Þegar vatnið er komið í skal skrúfa lokið þétt á.

Ráð: Forðist að yfirborð hitapokans komist í snertingu við mikinn hita, s.s á ofn, í sól eða olíukennd efni, fitu o.s.frv. Þegar hitapokinn er ekki í notkun skal tæma hann alveg og ekki skal setja lokið á heldur leyfa honum að anda.

Nánari upplýsingar:

  • Stærð: 1 lítri, 26x16 cm
  • Efni hitapoka: 45% Natural Rubber
  • Efni áklæðis: Acryl Yarn