Flux - Munn- og tannheilsa

Flux Pro Klorhexidin Flúormunnskol - 250 ml

Klórhexidín er bakteríudrepandi munnskol með hátt flúorinnihald sem styrkir glerunginn og er fyrirbyggjandi gegn tannskemmdum.
Flux Klorhexidín er með fersku myntubragði og inniheldur ekki alkóhól, þess vegna er munnskolið gott á viðkvæmt tannhold.

Munnskolið er til skammtímameðferðar og oft notað skv ráðleggingum frá tannlækni eftir aðgerð, vegna bólgu í tannholdi eða eftir að tönn hefur verið fjarlægð.

Virk innihaldsefni:  klórhexidín (0,12%) og flúor (0,2% NaF) 
Bragð:  Coolmint
Mælt með fyrir:  Fullorðnir og börn eldri en 12 ára
Stærð:  250 ml

Notkun: Þegar flaskan er kreist fæst 10 ml skammtur. Skolið munninn með 10 ml af Flux Klorhexidin munnskoli í að minnsta kosti eina mínútu eftir að hafa burstað tennurnar vandlega og spýtið svo. 
Við langtímanotkun getur komið fram brún litaskán á tönnum og yfirborði tungu. Þessi litaskán er ekki varanleg og hægt er að hreinsa hana burt með tannhreinsun hjá tannlækni.