Eklira Genuair

Virka efnið í Eklira Genuair er aklídiníum sem tilheyrir flokki lyfja sem nefnast berkjuvíkkandi lyf. Berkjuvíkkandi lyf slaka á öndunarvegi og halda berkjugreinum opnum. Eklira Genuair er þurrduftsinnöndunartæki sem nýtir andardrátt þinn til að koma lyfinu ofan í lungun. Þetta auðveldar öndun hjá sjúklingum með langvinna lungnateppu.

Elikra Genuair er notað til að opna öndunarveg og draga úr einkennum langvinnrar lungnateppu, sem er alvarlegur, langvinnur lungnasjúkdómur sem einkennist af öndunarerfiðleikum. Regluleg notkun Eklira Genuair getur hjálpað þér þegar þú ert með mæði í tengslum við sjúkdóminn til að draga úr áhrifum sjúkdómsins á daglegt líf og fækka tilfellum þar sem einkenni blossa upp (versnun einkenna langvinnrar lungnateppu sem stendur yfir í nokkra daga).

Ábendingar:

Eklira Genuair er ætlað til berkjuvíkkandi viðhaldsmeðferðar til að draga úr einkennum hjá fullorðnum sjúklingum með langvinna lungnateppu (LLT).

Frábendingar:

Ofnæmi fyrir aklídiníumbrómíði eða einhverju hjálparefnanna.

Markaðsleyfishafi: Covis Pharma Europe B.V.

Ítarupplýsingar

Tegund lyfs
R03B - Önnur innöndunarlyf við teppusjúkdómum í öndunarvegi
Virkt innihaldsefni
Aclidinii bromidum
Lyfjaform
Innöndunarduft
Styrkleiki
322 míkróg
Magn
60 skammtar

Upplýsingar um aukaverkanir, milliverkanir, varnaðarorð og önnur mikilvæg atriði má nálgast í sérlyfjaskrá

EKL.R.A.2026.0001.01
VörunúmerStyrkurMagn
503406322 mcg60 skammtar