Decubal

Decubal Junior hair & body wash - 200ml

Mildur hár- og líkamsþvottur fyrir ungabörn og börn á öllum aldri.

Mildur hár- og líkamsþvottur með vandlega völdum innihaldsefnum sem hreinsa og næra þurra og viðkvæma húð á mildan hátt hjá ungabörnum og börnum. Þetta er hentug 2in1 vara sem hentar til að þvo og hreinsa bæði hár og húð án þess að það valdi þurrki . Inniheldur rakagefandi efni sem hjálpa til við að viðhalda náttúrulegu rakajafnvægi húðarinnar. Varan inniheldur einnig mýkjandi innihaldsefni sem auðvelda að greiða í gegnum hárið. Vegna mildra efna er aðeins hægt að búast við lítilsháttar froðumyndunar þegar vörunni er nuddað í hárið og á líkamann. Án ilmefna og er ofnæmisvottað.

Eiginleikar

  • Til daglegrar notkunar á líkama og í hár.
  • Hreinsar hár og húð.
  • Stuðlar að því að viðhalda náttúrulegu rakajafnvægi húðarinnar.
  • Auðvelt að greiða hárið eftir notkun.
  • Hentar fyrir sturtuna og í baðið.
  • Prófað á húð.
  • Án ilmefna.
  • Ofnæmisvottað.
  • Vegan.

Notkun: Hentar til daglegarar notkunar í sturtuna og/eða baðið.