Capecitabine Zentiva k.s.
Capecitabine Zentiva k.s. inniheldur virka efnið Capecítabín. Capecitabine Zentiva k.s. tilheyrir flokki lyfja sem nefnast „frumueyðandi lyf“ sem stöðva vöxt krabbameinsfrumna. Capecitabine Zentiva k.s. inniheldur capecítabín sem er ekki frumueyðandi lyf. Eftir að það frásogast í líkamanum breytist það í virkt frumueyðandi lyf í líkamanum (meira í æxlisvef en í heilbrigðum vef).
Capecitabine Zentiva k.s. er notað til meðferðar á krabbameini í ristli, endaþarmi, maga eða brjóstum. Auk þess er Capecitabine Zentiva k.s. notað til að koma í veg fyrir að krabbamein í ristli komi upp að nýju eftir að allt æxlið hefur verið fjarlægt með skurðaðgerð.
Ábendingar:
Capecítabín er notað:
- sem stuðningsmeðferð fyrir sjúklinga eftir skurðaðgerð á III. stigs (C-stig Dukes) krabbameini í ristli.
- sem meðferð á krabbameini í ristli og endaþarmi með meinvörpum.
- sem upphafsmeðferð á langt gengnu krabbameini í maga ásamt meðferð með platínusamböndum.
- með dócetaxeli til meðferðar á sjúklingum með brjóstakrabbamein sem er staðbundið langt gengið eða með meinvörpum eftir að önnur krabbameinslyfjameðferð hefur ekki borið árangur. Fyrri meðferðir ættu að hafa innihaldið antracýklín.
- í einlyfjameðferð til meðferðar á sjúklingum með brjóstakrabbamein sem er staðbundið langt gengið eða með meinvörpum þegar taxön og antracýklín innihaldandi krabbameinslyfjameðferð hefur brugðist eða frekari antracýklín meðferð er ekki ráðlögð.
Frábendingar
- Saga um alvarleg og óvænt ofnæmisviðbrögð við flúórópýrímídín meðferð,
- Ofnæmi fyrir capecítabíni eða einhverju hjálparefnanna eða flúóróúracíli,
- Þekktur algjör skortur á díhýdrópýrímídín dehýdrógenasa (DPD),
- Meðganga og brjóstagjöf,
- Sjúklingar með alvarlega hvítfrumnafæð, daufkyrningafæð eða blóðflagnafæð,
- Sjúklingar með alvarlega skerta lifrarstarfsemi,
- Sjúklingar með alvarlega skerta nýrnastarfsemi (kreatínín úthreinsun undir 30 ml/mín),
- Nýleg eða samhliða meðferð með brívúdíni.
- Ef frábending er fyrir hendi fyrir einhverju lyfjanna í samsettri meðferð á ekki að nota það lyf.
Markaðsleyfishafi: Zentiva k.s.
Ítarupplýsingar
- Tegund lyfs
- L01B - Andmetabólítar
- Virkt innihaldsefni
- Capecitabinum
- Lyfjaform
- Filmuhúðuð tafla
- Styrkleiki
- 500 mg
- Magn
- 120 stk.
Upplýsingar um aukaverkanir, milliverkanir, varnaðarorð og önnur mikilvæg atriði má nálgast í sérlyfjaskrá