Allorin
Allorin inniheldur virka efnið Allopurinol. Allorin tilheyrir flokki lyfja sem kallast ensímhemlar, sem verka með því að stjórna hraðanum á ákveðnum efnabreytingum í líkamanum, sem í þessu tilfelli leiðir til lækkunar á styrk þvagsýru í plasma og þvagi.
Allorin er notað sem fyrirbyggjandi meðferð við þvagsýrugigt og öðrum kvillum sem tengjast of miklu magni af þvagsýru í líkamanum, þar með talið nýrnasteinum og ákveðnum nýrna- og efnaskiptasjúkdómum.
Ábendingar:
Lækkun á styrk úrats í líkamsvökva og/eða þvagi til að fyrirbyggja eða valda brotthvarfi á þvagsýru og þvagsýrusteinum þegar breytingar á mataræði, vökvainntaka eða stjórnun á undirliggjandi orsök hafa ekki valdið leiðréttingu á hækkuðum styrk úrats.
- Meðferð á helstu klínískum fylgikvillum þvagsýrudreyra, þ.á.m. sjálfvakinni þvagsýrugigt.
- Þvagsýrusteinakvilli.
- Nýrnakvilli af völdum þvagsýru.
- Æxlissjúkdómur og mergvaxtarheilkenni með mikilli frumuendurnýjun sem veldur hækkun á gildi úrats, bæði sjálfvakið og eftir frumudrepandi meðferð.
- Ensímraskanir sem leiða til offramleiðslu úrats, þ.m.t.: Hýpóxanthin gúanín fosforíbósýltransferasi, þ.á.m. Lesch-Nyhan heilkenni. Glúkósa-6-fosfatasi, þ.á.m. glýkógenkvilli. Fosfóríbósýl pýrófosfat syntetasi. Fosfóríbósýl pýrófosfat amíð-transferasi. Adenín fosfóríbósýltransferasi. Glútaþíon redúktasi. Glútamat vetnissviftir.
- Meðhöndlun á endurteknum blönduðum kalsíumoxalatsteinakvilli samhliða þvagsýrudreyra, þegar mataræði, vökvainntaka og önnur meðferðarúrræði hafa ekki virkað.
Börn og unglingar
- Afleiddur þvagsýrudreyri af öðrum uppruna.
- Nýrnakvilli vegna þvagsýru á meðan á meðferð við hvítblæði stendur.
- Arfgengur ensímskortur, Lesch-Nyhan heilkenni (að hluta til eða alger skortur á hýpóxanthin gúanín fosforíbósýltransferasa) og skortur á adenín fosfóríbósýltransferasa.
Frábendingar:
Allorin ætti ekki að nota hjá einstaklingum með ofnæmi fyrir virka efninu allopurinoli eða einhverju hjálparefnanna
Markaðsleyfishafi: Alvogen ehf.
Ítarupplýsingar
- Tegund lyfs
- M04A - Þvagsýrugigtarlyf
- Virkt innihaldsefni
- Allopurinolum
- Lyfjaform
- Tafla
- Styrkleiki
- 100 og 300 mg
- Magn
- 100 og 60 stk.
Upplýsingar um aukaverkanir, milliverkanir, varnaðarorð og önnur mikilvæg atriði má nálgast í sérlyfjaskrá