Alfuzosin hydrochlorid ratiopharm
Alfuzosin hydrochlorid ratiopharm (Alfuzosin hydrochloride Alvogen) inniheldur virka efnið alfúzósín og tilheyrir flokki lyfja sem kallast alfa-blokkar. Lyfið má nota til að meðhöndla einkenni góðkynja stækkunar blöðruhálskirtils. Það er þegar blöðruhálskirtillinn stækkar, en vöxturinn er ekki krabbameinsvaldandi. Það getur valdið vandræðum við losun þvags.
Ábending:
- Meðferð við miðlungi til verulega miklum einkennum góðkynja stækkunar í blöðruhálskirtli (BPH) þar á meðal viðbótarmeðferð með þvagleggsþræðingu við bráðri þvagteppu (AUR) sem tengist góðkynja stækkun blöðruhálskirtils og meðhöndlun eftir að þvagleggurinn er fjarlægður.
Frábending:
- Ofnæmi fyrir alfuzosini, öðrum quinazolinum (t.d. terazosini, doxazosini) eða einhverju hjálparefnanna.
- Réttstöðulágþrýstingur.
- Skert lifrarstarfsemi.
- Samhliðanotkun annarra alfa-1-blokka.
Markaðsleyfishafi: Alvogen ehf.
Ítarupplýsingar
- Tegund lyfs
- G04CA - Alfa-blokkar
- Virkt innihaldsefni
- Alfúzósín
- Lyfjaform
- Forðatöflur
- Styrkleiki
- 10 mg
- Magn
- 90 stk.
Upplýsingar um aukaverkanir, milliverkanir, varnaðarorð og önnur mikilvæg atriði má nálgast í sérlyfjaskrá - www.serlyfjaskra.is
ALF.R.A.2026.0001.03