Multi-Mam

Multi Mam Kompressur

Áhrifarík meðferð fyrir konur með barn á brjósti.

Multi-Mam kompressurnar eru draga fljótt úr sársauka í geirvörtum og henta einstaklega vel fyrir mæður sem þjást af óþægindum vegna brjóstagjafar s.s. sárum, aumum, sprungnum og bólgnum geirvörtum.

  • Hafa bein róandi áhrif á sárar geirvörtur
  • Hindra sýkingu (brjóstabólgu)
  • Styðja við náttúrulegan sáragróanda 
  • Gelið er náttúrulegt, öruggt og skaðlaust við inntöku

VIRK INNIHALDSEFNI

Kompressurnar eru gegndreyptar lífvirku geli sem inniheldur einkaleyfisvarða efnasambandið 2QR unnið úr Aloe Barbadensis plöntunni. Það hlutleysir, kemur í veg fyrir viðloðun og hamlar vöxt skaðlegra baktería á öruggan og náttúrulegan hátt og styður við náttúrulegan sáragróanda.

NOTKUNARLEIÐBEININGAR 

Þvoðu hendur og geirvörtusvæði með volgu vatni og þurrkaðu varlega. Opnaðu pokann og þrýstu kompressunni út. Leggðu gelhlið kompressunnar á geirvörtuna og láttu hana hvíla þar í minnst 10 mínútur og mest 1 klukkustund. Kompressurnar eru einnota og skal hent eftir notkun. Ekki þarf að þurrka umfram gel af geirvörtunum fyrir brjóstagjöf, það er skaðlaust fyrir barnið þitt.

  • Nota má kompressurnar eins oft og þörf krefur
  • Mælt með að nota kompressurnar eftir brjóstagjöf, minnst tvisvar á dag á sárar geirvörtur
  • Leita skal til læknis ef meðferðin linar ekki sársaukann á geirvörtusvæðinu

Multi-Mam Kompresser innihalda engin ilmefni, rotvarnarefni eða sterk efni og eru vegan. Hver pakkning inniheldur 12 kompressur gegndreypar með 1,5 g af lífvirku geli.

Fæst í næsta apóteki og versluninni Móðurást.