Skip Navigation

Yas Holding kaupir nýtt hlutafé í Alvotech

Business
04 November 2019

Fjárfestingafélagið Yas Holding hefur gert samkomulag við Alvotech um kaup á nýju hlutafé og samstarfssamning um þróun, framleiðslu og sölu líftæknilyfja.

Virði samkomulagsins er um 5,3 milljarðar króna (45 milljónir Bandaríkjadala) og felur í sér að Yas Holding fái markaðsleyfi fyrir þrjú líftæknilyf sem eru í þróun hjá Alvotech og verða markaðssett á næstu árum. YAS verður jafnframt eigandi að 2,5% hlut í fyrirtækinu.

YAS Holding er alþjóðlegur fjárfestingasjóður með höfuðstöðvar í Abú Dabí og bætist nú í hóp hluthafa Alvotech. Núverandi fjárfestingar YAS nema um 87 milljörðum króna, tekjur fyrirtækisins eru um 250 milljarðar króna á ári og þar starfa um 5,000 starfsmenn. Yas mun markaðssetja lyf Alvotech í Mið-Austurlöndum og Norður-Afríku með samstarfsfyrirtækjum sínum. Líftæknilyfin sem um ræðir eru í hópi söluhæstu lyfja heims í dag en hliðstæðulyf Alvotech verða markaðssett þegar einkaleyfi frumlyfja renna út.

Í desember 2018 var tilkynnt um kaup japanska lyfjafyrirtækisins Fuji Pharma á um 4,2% hlut í Alvotech fyrir um 6,2 milljarða króna. Eins og áður er Alvotech í meirihlutaeigu Aztiq Pharma, undir forystu Róberts Wessman, stofnanda og stjórnarformanns fyrirtækisins. Auk Yas Holding og Fuji Pharma er systurfyrirtækið Alvogen stór hluthafi en þar eru fyrir einir stærstu fjárfestingasjóðir í heiminum í dag, CVC Capital Management og Temasek sem er fjárfestingasjóður ríkissjóðs Singapore.

Róbert Wessman, stofnandi og stjórnarformaður Alvotech, segir ánægjulegt að fá nýjan fjárfesti í öflugan hóp hluthafa fyrirtækisins.

„Á þessu ári höfum við gert fjölmarga samstarfssamninga við leiðandi lyfjafyrirtæki sem munu markaðssetja lyf Alvotech á næstu árum. Verksmiðja fyrirtækisins hefur nú þegar fengið framleiðsluleyfi og Alvotech hefur ráðið til sín um 400 vísindamenn og sérfræðinga til að vinnna að áframhaldandi uppbyggingu. Fjárfesting YAS Holding í Alvotech styður við okkar framtíðarstefnu, en er ekki síður til marks um þá trú sem erlendir fjárfestar hafa á fyrirtækinu og áhuga alþjóðlegra lyfjafyrirtækja á að tryggja sér aðgang að lyfjum Alvotech.“

Róbert Wessman

Stofnandi og stjórnarformaður Alvotech

Nánar um Alvotech

Alvotech vinnur að þróun og framleiðslu líftæknilyfja sem eru notuð til meðferðar á erfiðum sjúkdómum, eins og ýmsum sjálfsofnæmissjúkdómum og krabbameini. Þróunar- og framleiðslusetur fyrirtækisins á Íslandi er búið fullkomnustu tækjum og búnaði og hefur fyrirtækið nú þegar fengið framleiðsluleyfi og gæðavottun. Hátæknisetrið er hluti af Vísindagörðum Háskóla Íslands í Vatnsmýrinni og er um 13 þúsund fermetrar að stærð.

Setrið var formlega opnað í júní 2016 og er Alvotech í nánu samstarfi við háskólasamfélagið um mótun menntunar á sviði líftækni og lyfjavísinda ásamt ýmsum öðrum verkefnum. Markmið fyrirtækisins er að auka aðgengi og lífsgæði sjúklinga um allan heim með þróun og framleiðslu nýrra líftæknilyfshliðstæðna (e.biosimilars) sem koma á markað þegar einkaleyfi renna út.