Skip Navigation

Skráningu lokið á fjórum tímum

Business
04 June 2014

Skráning í miðnæturtímatökumót Alvogen hófst í morgun kl. 10:00. Skráningu er nú lokið og tók aðeins um fjórar klukkustundir að fylla þau 100 sæti sem voru í boði. Leitað er að hröðustu hjólreiðamönnum og -konum landsins sem munu keppa um titilinn hraðasti hjólreiðamaður Íslands 2014.  Sæbrautinni verður lokað á meðan á keppninni stendur.

Skráning í miðnæturtímatökumót Alvogen hófst í morgun kl. 10:00. Skráningu er nú lokið og tók aðeins um fjórar klukkustundir að fylla þau 100 sæti sem voru í boði. Leitað er að hröðustu hjólreiðamönnum og -konum landsins sem munu keppa um titilinn hraðasti hjólreiðamaður Íslands 2014.  Sæbrautinni verður lokað á meðan á keppninni stendur. Von er á sterkum erlendum keppendum á mótið í þríþrautarhjólaflokki og vegleg verðlaun verða veitt fyrir efstu þrjú sætin í hverjum flokki.

Eins og áður hafði verið tilkynnt hljóta vinningshafar í fimm efstu sætum í Alvogen Midnight Time Trial 2013 forgang við skráningu, ásamt fimm efstu í tímatökumótum ársins 2014. Einnig verður leitast við að hafa sem jafnasta skiptingu á milli kynja og fjölda í götu- og þríþrautarflokki.

Nánari upplýsingar um tímasetningar, keppendalista og rástíma verða veittar á næstu dögum og verða aðgengilegar á vefsvæði Alvogen.