Skip Navigation

Nýir liðsmenn til Alvogen

People
21 May 2014

Lyfjafyrirtækið Alvogen heldur áfram að byggja upp starfsemi sína á Íslandi. Tæplega 50 starfsmenn starfa í dag hjá fyrirtækinu hér á landi og nýlega var starfsmönnum fjölgað um þrjá. Þetta eru Guðmundur Óskarsson, framkvæmdastjóri upplýsingatækni, María Kristín Þrastardóttir og Sigríður Ólafsdóttir, sérfræðingar á fjármálasviði.

Lyfjafyrirtækið Alvogen heldur áfram að byggja upp starfsemi sína á Íslandi. Tæplega 50 starfsmenn starfa í dag hjá fyrirtækinu hér á landi og alls um 2.000 starfsmenn í 34 löndum. Starfsfólk fyrirtækisins á Íslandi sinnir ýmsum verkefnum fyrir markaði félagsins, m.a. á sviði fjármála, gæðamála, markaðs- og kynningarmála.

Guðmundur Örn Óskarsson var í október s.l. ráðinn sem framkvæmdastjóri upplýsingatækni. Hann hefur yfir 10 ára reynslu af stefnumótun og rekstri upplýsingatækni í alþjóðlegu umhverfi. Guðmundur mun bera ábyrgð á að styðja við alþjóðlegan vöxt fyrirtækisins með hagkvæmum og umfram allt öruggum lausnum á sviði upplýsingatækni. Undanfarin 10 ár starfaði hann hjá stoðtækjafyrirtækinu Össur og tók þátt í að byggja upp félagið á alþjóðavísu. Guðmundur er með Masters gráðu (M.Sc) í rekstrarverkfræði frá Háskólanum í Álaborg, Danmörku.

María Kristín Þrastardóttir hefur verið ráðin sem sérfræðingur á fjármálasviði.  María er með Cand Oceon gráðu í reikningshaldi og endurskoðun frá Háskóla Íslands og hefur síðastliðin 10 ár starfað hjá Deloitte. Þar starfaði hún við endurskoðun og reikningsskil og í nýju starfi mun María sinna ýmsum verkefnum í bókhaldi og fjárhagsuppgjörum.

Sigríður Ólafsdóttir hefur einnig verið ráðinsem sérfræðingur á fjármálasviði. Hún er með MS gráðu í fjármálum frá Háskóla Íslands og BS gráðu í viðskiptafræði frá sama skóla. Sigríður hefur undanfarin ár starfað við fjármálastjórn og rekstur fyrirtækja en hefur einnig reynslu af áhættustýringu og fyrirtækjaráðgjöf hjá Kaupþingi og Nýja Kaupþing banka. Sigríður mun halda utan um lánastarfsemi milli dótturfélaga Alvogen ásamt öðrum verkefnum.

Alvogen vinnur nú að uppbyggingu Hátækniseturs í hjarta borgarinnar. Í tengslum við framkvæmdina munu skapast um 400 ársverk og um 200 framtíðarstörf munu skapast í tengslum við starfsemi Alvogen til framtíðar. Á árinu 2014 eru fyrirhugaðar frekari ráðningar í tengslum við Hátæknisetur Alvogen sem mun hefja starfsemi sína í ársbyrjun 2016.