Skip Navigation

Alvogen fyrst á markað með Tamiflu í Bandaríkjunum

Business
12 December 2016

Lyfjafyrirtækið Alvogen hefur sett fyrstu samheitalyfjaútgáfu flensulyfsins Tamiflu á markað í Bandaríkjunum. Um er að ræða stærstu markaðssetningu fyrirtækisins til þessa en Tamiflu. Búast má við að umtalsverður sparnaður náist fyrir bandaríska neytendur með tilkomu lyfsins sem getur numið allt að 56 milljörðum króna (500 milljónum bandaríkjadala) á næstu mánuðum.

Róbert Wessman forstjóri Alvogen segir markaðssetningu lyfsins marka tímamót hjá fyrirtækinu. „Frá árinu 2010 höfum við unnið að þróun og skráningu lyfsins og því ánægjulegt að það sé nú komið í sölu. Þetta eru líka góð tíðindi fyrir bandaríska neytendur sem fá nú ódýrari valkost fyrir meðferð við flensu sem mun skila umtalsverðum sparnaði.“

Alvogen var stofnað árið 2009 í Bandaríkjunum af Róberti Wessman sem gegnt hefur stöðu stjórnarformanns og forstjóra frá þeim tíma. Árlegur Tekjuvöxtur fyrirtækisins hefur að jafnaði verið um 59% undanfarin sjö ár og nær starfsemi Alvogen nú til 35 landa. Bandaríkin eru stærsti einstaki markaður Alvogen en aðrir markaðir eru Suður-Kórea, Tævan, Japan, Kína, Rússland, Rúmenía, Pólland og Búlgaría.

Árið 2016 hefur verið viðburðarríkt hjá fyrirtækinu og fyrr á þessu ári yfirtók Alvogen tvö bandarísk lyfjafyrirtæki sem styrkti starfsemi þess enn frekar þar í landi. Nýtt Hátæknisetur var opnað við hátíðlega athöfn þann 3. júní síðastliðinn og þar starfa nú um 180 vísindamenn. Árið var einnig viðburðarríkt á alþjóðlegum mörkuðum fyrirtækisins þar sem fjölmörg ný samheitalyf voru sett á markað og áfram er unnið að þróun og skráningum nýrra lyfja.