Skip Navigation

Klínískar rannsóknir hafnar á fyrsta lyftæknilyfi Alvotech

Business

Alvotech, systurfyrirtæki Alvogen hefur nú hafið klínískar rannsóknir á sínu fyrsta lyfi. Um er að ræða líftæknilyfshliðstæðu lyfsins Humira sem er í dag söluhæsta lyf heims og selst fyrir um 20 milljarða Bandaríkjadala á ári (um 2.400 milljarðar króna).

Lyfið hefur reynst árangursríkt við meðferð á ýmsum sjálfsofnæmissjúkdómum, eins og liðagigt og psoriasis. Um 400 þátttakendur taka þátt í rannsókninni, sem á sér stað á 30 stöðum vítt og breitt um Evrópu. Á Íslandi starfa fyrirtækin innan hátækniseturs fyrirtækjanna í Vatnsmýrinni og þar starfa 250 vísindamenn. Fyrirhugað er að ráða 100 vísindamenn til viðbótar á Íslandi.

Róbert Wessman, stofnandi og stjórnarformaður Alvotech,segir það stóran áfanga fyrir fyrirtækið að hefja klínískar rannsóknir.

„Nú eru átta ár síðan við hófum undirbúning á þróun og framleiðslu líftæknilyfja og aðeins um þrjú ár síðan hátæknisetur Alvotech opnaði í Vatnsmýrinni. Fjölmargir mikilvægir áfangar hafa náðst á þessum tíma. Markmið okkar er að hátæknisetur fyrirtækisins verði leiðandi á heimsvísu í þróun og framleiðslu líftæknilyfja og að aðgengi sjúklinga að hágæða lyfjum aukist enn frekar. Okkur miðar vel áfram og þróunarstarf Alvotech gengur samkvæmt áætlun og fyrirtækið er vel fjármagnað til frekari vaxtar á næstum árum,“

Róbert Wessman

Stofnandi og stjórnarformaður Alvotech

Í dag starfa um 250 vísindamenn hjá Alvotech á Íslandi, í Sviss og í Þýskalandi. Gert er ráð fyrir að ríflega 100 vísindamenn verði ráðnir á Íslandi til starfa í hátæknisetri fyrirtækisins á næstu 12 mánuðum. Alvotech hefur nú þegar fengið framleiðsluleyfi fyrir lyf sín og tryggði sér nýlega beint aðgengi að tveimur af stærstu lyfjamörkuðum heims, Kína og Japan, með mikilvægum samstarfssamningum. Í Kína er hafin uppbygging á nýrri lyfjaverksmiðju, sem verður að helmingshluta í eigu Alvotech. Í Japan hefur verið undirritaður mikilvægur samstarfssamningur um sölu og dreifingu lyfja fyrirtækisins við Fuji Pharma, sem jafnframt eru orðnir hluthafar í Alvotech.

Alvotech mun framleiða og selja lyfið með samstarfsaðilum sínum á öllum lyfjamörkuðum heims. Með tilkomu lyfsins skapast umtalsverður sparnaður fyrir heilbrigðisyfirvöld um allan heim og rannsóknir hafa jafnframt sýnt fram á aukið aðgengi sjúklinga að nýjum líftæknilyfjum, þegar líftæknihliðstæðulyf koma á markað. Líftæknilyfshliðstæða Alvotech er frábrugðin lyfjum samkeppnisaðila að því leyti að það er 100 mg/ml formúlering, sambærileg við nýja útgáfu frumlyfsins sem nú er á markaði. Á Íslandi nemur árleg sala lyfsins um 355 milljónum króna. Gert er ráð fyrir að markaðssetning lyfsins hefjist fljótlega eftir að klínskum rannsóknum lýkur.