Skip Navigation

Alvogen fyrst á markað með flensulyf í Bandaríkjunum

Business
02 November 2017

Alvogen var í dag fyrst lyfjafyrirtækja á markað í Bandaríkjunum með nýtt samheitalyf fyrir flensulyfið Tamiflu® (Oseltamivir phosphate) í lyfjaforminu mixtúruduft, dreifa 6 mg/ml.

Áður hafði fyrirtækið sett á markað Tamiflu hylki og býður því nú upp á tvenns konar lyfjaform á markaði fyrir komandi flensutímabil.

Árleg sala samheitalyfjaútgáfu Tamiflu (Oseltamivir suspension) á Bandaríkjamarkaði er áætluð um 33 milljarðar íslenskra króna.

Róbert Wessman, forstjóri Alvogen, segir það stóran áfanga fyrir Alvogen að vera fyrst á markað með svo stórt lyf.

„Það er ánægjulegt að vera aftur fyrst á markað með samheitalyf Tamiflu á stærsta lyfjamarkaði heims. Markaðsetning Alvogen felur í sér umtalsverðan sparnað fyrir bandaríska neytendur sem nú hafa ódýrari valkost í baráttunni við flensu.“

Róbert Wessman

Forstjóri Alvogen

Alvogen er um þessar mundir með um 75 samheitalyf í þróun í Bandaríkjunum sem bíða samþykkis bandaríska lyfjaeftirlitsins. Árlegur tekjuvöxtur Alvogen hefur að jafnaði verið um 59% undanfarin átta ár og nær starfsemi fyrirtækisins nú til 35 landa. Bandaríkin eru stærsti einstaki markaður Alvogen.

 
*Tamiflu er skráð vörumerki Hoffman La-Roche Inc. Corporation.