Skip Navigation

Alvogen eykur umsvif sín í Rússlandi

Business
15 August 2017

Alvogen tilkynnti í dag um kaup á rússneska lyfjafyrirtækinu Omega Bittner. Fyrirtækið hefur sterka stöðu í sölu lausasölulyfja í Rússlandi og er góð viðbót við lyfjasafn Alvogen á markaðnum. Omega Bittner var áður í eigu bandaríska lyfjafyrirtækisins Perrigo en um 80 manns starfa hjá fyrirtækinu í Rússlandi.

Róbert Wessman forstjóri Alvogen segir að góð vaxtartækifæri séu fyrir Alvogen í Rússlandi.

„Rússland er einn af okkar sterkustu mörkuðum og við höfum jafnt og þétt verið að styrkja okkar stöðu þar. Lyfjasafn Omega Bittner er hrein viðbót við sölustarfsemi okkar í Rússlandi og eykur samkeppnisstöðu okkar á markaðnum enn frekar.“

Róbert Wessman

Forstjóri Alvogen

Starfsemi Alvogen nær til 35 landa og hjá félaginu starfa um 2,800 starfsmenn. Helstu markaðssvæði fyrirtækisins í Mið- og Austur Evrópu eru Rússland, Rúmenía, Ungverjaland, Úkraína og Búlgaría.

Á Íslandi starfa um 230 vísindamenn á vegum systurfyrirtækjanna Alvogen og Alvotech í nýju hátæknisetri.