Skip Navigation

Alvogen verður einn af styrktaraðilum HSÍ

Business
08 January 2019

Handknattleikssamband Íslands og lyfjafyrirtækið Alvogen hafa skrifað undir samkomulag þess efnis að Alvogen verður einn af aðalstyrktaraðilum HSÍ. Alvogen mun því frá og með HM í Þýskalandi og Danmörku vera með auglýsingu sína framan á treyjum allra landsliða Íslands í handbolta. Jafnframt mun fyrirtækið koma að eflingu yngri landsliða með fræðslu og útbreiðslu í framtíðinni og þannig efla afreksfólk framtíðarinnar hjá HSÍ.

Stór verkefni eru framundan hjá HSÍ á þessu ári. A landslið karla heldur á HM í Þýskalandi og Danmörku í næstu viku, A landslið kvenna spilar umspilsleiki fyrir HM í maí og júní. U-21 árs landslið karla hefur tryggt sér þátttökurétt á HM á Spáni í júlí og í ágúst fer U-19 ára landslið karla einnig á HM, sem haldið verður í Makedóníu. U-17 ára landslið karla hefur tryggt sér þáttökurétt á Opna Evrópumótinu í Gautaborg og Ólympíuhátíð Evrópuæskunnar í Bakú í Azerbaijan. Þá taka U-19 og U-17 ára landslið kvenna þátt í B-deildum EM í Búlgaríu og Ítalíu í sumar.

“Stuðningur frá íslensku atvinnulífi við HSÍ er ómetanlegur og það að Alvogen tengi vörumerki sitt við HSÍ er viðurkenning á því góða starfi sem HSÍ sinnir fyrir handknattleiksfólk á öllum aldri. Handknattleikssambandið er stolt af því að fá Alvogen í hóp sterkra bakhjarla hjá sambandinu og er markmið okkar með samstarfi við Alvogen að tengja HSÍ og Alvogen enn frekar saman og vinna vel í sameiningu að framþróun íslenska handboltans á næstu árum. HSÍ lýsir yfir ánægju sinni með þennan samning og vonast til þess að eiga gott samstarf við Alvogen í framtíðinni.” segir Guðmundur B. Ólafsson formaður HSÍ.

Alvogen er alþjóðlegt lyfjafyrirtæki með starfsemi í 35 löndum og evrópskar höfuðstöðvar fyrirtækisins eru í hátæknisetri systurfyrirtækjanna Alvogen og Alvotech innan Vísindagarða Háskóla Íslands. Róbert Wessman er forstjóri Alvogen. 

Róbert Wessman forstjóri Alvogen segir ánægjulegt að fá tækifæri til að styðja við íslenskan handknattleik. „Framundan eru spennandi tímar fyrir öll landslið Íslands og við hlökkum til samstarfsins á næstu árum.“