Skip Navigation

Alvogen ehf. tekur við dreifingu og markaðssetningu ACO húðvara og vörulínan stækkar

Business
21 September 2026

Það er með ánægju sem við tilkynnum að Karo Healthcare, sem Alvogen ehf. er umboðsaðili fyrir á Íslandi, hefur keypt sænska húðvörumerkið ACO.

Við hjá Alvogen ehf. erum stollt af því að geta boðið íslendingum upp á breiðara vöruúrval ACO húðvaranna.

ACO er rótgróið sænskt húðvörumerki sem á sér langa sögu og hefur um árabil þróað vandaðar húðvörur með áherslu á virkni, gæði og þarfir húðarinnar. Vörurnar eru þróaðar í samstarfi við sérfræðinga og byggja á vandlega völdum innihaldsefnum.

Vörulínur ACO bjóða upp á lausnir fyrir fjölbreyttar þarfir húðarinnar – allt frá daglegri hreinsun og rakagjöf til markvissrar umhirðu fyrir þurra, viðkvæma og bóluhneigða húð. Þar má meðal annars finna vörur úr ACO Face, ACO Spotless og sérhæfðar vörur fyrir húð og hársvörð.

Með ACO bætist öflugt og traust húðvörumerki við vöruframboð Alvogen ehf. og hlökkum við til að gera vörurnar enn aðgengilegri fyrir íslenska neytendur.