Skip Navigation

Bestu hjólreiðamenn Íslands öttu kappi við Hörpu

Business
04 July 2014

Alvogen Midnight Time Trial var haldið í annað sinn í gærkvöldi við Hörpu. Sæbrautin var lokuð fyrir umferð á meðan á keppni stóð og var hjólað frá Hörpu upp fyrir Laugarnesveg og til baka. Keppnin er tileinkuð réttindum barna og renna þátttökugjöld óskert til neyðarsöfnunar UNICEF til hjálpar börnum í Suður-Súdan.

Alvogen Midnight Time Trial var haldið í annað sinn í gærkvöldi við Hörpu. Sæbrautin var lokuð fyrir umferð á meðan á keppni stóð og var hjólað frá Hörpu upp fyrir Laugarnesveg og til baka. Keppnin er tileinkuð réttindum barna og renna þátttökugjöld óskert til neyðarsöfnunar UNICEF til hjálpar börnum í Suður-Súdan.

Einnig styrkti Alvogen og starfsfólk lyfjafyrirtækisins, í þrjátíu löndum um heim allan, söfnunina og samtals söfnuðust yfir 13 milljónir króna ef með er talið aðgangseyrir frá styrktartónleikum sem Alvogen stóð fyrir.

Eitt hundrað hröðustu hjólarar landsins tóku þátt og var mjótt á munum. Margir af hröðustu hjólreiðamönnum og konum voru mætt til keppni og mikill fjöldi áhorfenda vakti athygli en tímatöku mót sem þessi eru einkar áhorfendavæn þar sem startað er með jöfnu millibili og brautin er tiltölulega stutt með jöfnum snúningum.

Sigurvegarar í þríþrautarflokki ( 32 KM ) voru þau Hákon Hranfsson og Hanka Kupfernagel. Hákon Hrafn vann einmitt sama flokk í fyrra en Hanka Kupfernagel kom sérstaklega frá Þýskalandi til að taka þátt í keppninni í kvöld. Í götuhjólaflokki voru það svo Óskar Ómarsson og María Ogn Guðmundsdóttir  sem voru sigurvegarar kvöldins.


Veitt voru verðlaun fyrir þrjú efstu sætin í hverjum flokki:

Þríþrautarflokkur karla 32 KM
1. Hákon Hrafn Sigurðsson á 43:16
2. Hafsteinn Ægir Geirsson á 43:31
3. Rúnar Orn Agústsson á 45:05


Þríþrautarflokkur kvenna 32 KM
1. Hanka Kupfernagel á 47:17
2. Alma María Rögnvaldsdóttir á 49:23
3. Asa Magnúsdóttir á 56:04

Götuhjólaflokkur karla 16 KM
1. Óskar Ómarsson á 24:06
2. Elvar Orn Reynisson á 25:21
3. Helgi Berg Friðþjófsson á 25:37

Götuhjólaflokkur kvenna 16 KM
María Ögn Guðmundsdóttir á 28:09
Ebba Særún Brynjarsdóttir á 28:34
Asa Guðný Asgeirsdóttir     á 28:41