Skip Navigation

Alvogen býður nágrönnum í Vatnsmýrinni í Litahlaupið

Business
03 June 2015

Á dögunum bauð lyfjafyrirtækið Alvogen íbúum á Stúdentagörðum miða í The Color Run í þakklætisskyni þegar forstjóri fyrirtækisins, Róbert Wessman ásamt samstarfsfélögum, bankaði upp á hjá íbúum á Stúdentagörðum.

Alls var 300 háskólanemum við Sæmundargötu boðið í litahlaupið og geta þeir nú fagnað próflokum með góðri hreyfingu og skemmtun. Alvogen er bakhjarl The Color Run litahlaupsins sem haldið verður í fyrsta sinn á Íslandi næstkomandi laugardag í miðborg Reykjavíkur.

Systurfyrirtækin Alvogen og Alvotech reisa nú nýtt hátæknisetur innan Vísindagarða HÍ og hafa framkvæmdir staðið yfir síðan í nóvember 2013. Stefnt er að því að framkvæmdum ljúki í ársbyrjun 2016. 

„Við erum einstaklega þakklát fyrir þolinmæðina og jákvæðni háskólanema í okkar garð á framkvæmdatímanum og okkur fannst því tilvalið að bjóða nágrönnum okkar í litahlaupið. Það var ánægjulegt að heimsækja þessa tilvonandi nágranna okkar í Vatnsmýrinni, það er alls ekki ónýtt að reisa framtíðarheimili okkar við hlið svona flottra námsmanna,“

Róbert Wessman

Forstjóri Alvogen