Aðrar vörur
Viruseptin - Gegn kvefi og flensulíkum einkennum
Viruseptin vinnur gegn kvefi og flensulíkum einkennum. Virka innihaldsefnið er unnið úr rauðþörungum. Sýnt hefur verið fram á virkni með klínískum rannsóknum.
- Fyrir fullorðna og börn 1 árs og eldri.
- Má nota á meðgöngu og með barn á brjósti.
- Má nota fyrirbyggjandi og eftir að einkenni byrja.
- 100% náttúruleg innihaldsefni. Vörurnar henta þeim sem eru vegan.
- Kirsuberjabragð.
- Getur stytt sýkingatíma og dregið úr alvarleika sýkingar og líkum á endurtekinni sýkingu.
NOTKUNARLEIÐBEININGAR:
Þú nærð bestum árangri með Viruseptin ef þú notar það um leið og þú finnur fyrir fyrstu einkennum veirusýkingar t.d. særindum í hálsi eða nefrennsli. Þú skalt halda notkun áfram daglega þar til einkennin eru horfin. Nota skal bæði munnúðann og nefúðann samhliða til að hámarka árangur. Ekki er hægt að ánetjast vörunum né taka of stóran skammt.
- Munnúði: Úða skal að minnsta kosti þrisvar sinnum í hálsinn nokkrum sinnum á dag þar til einkennin eru horfin.
- Nefúði: Úða skal einu sinni í hvora nös að minnsta kosti þrisvar sinnum á dag þar til einkennin eru horfin.