Valablis

Til meðferðar við frunsum

Valacíklóvír 500 mg

Valablis

ATH. Valablis er því miður ófáanlegt eins og stendur. Von er á lyfinu aftur síðar.

Lausasölulyf til meðferðar á frunsu.

  • Töflur til inntöku
  • Óþarfi að koma við sýkt svæði
  • Ekki sjáanleg meðferð á vörum
  • Meðferðin er einungis tveir skammtar á 12 tímum

Ábending: Valablis er notað til að meðhöndla frunsur hjá heilbrigðum einstaklingum 18 ára og eldri og hafa áður verið greindir af lækni með frunsur og þurfa endurtekna meðferð vegna þessa.

Notkunarupplýsingar: Taktu lyfið um munn. Gleyptu töflurnar heilar með sopa af vatni.

- Venjulegur skammtur er 2.000 mg (fjórar 500 mg töflur) tvisvar á dag.
- Seinni skammtinn skal taka 12 klst. (ekki innan við 6 klst.) eftir fyrsta skammtinn.
- Þú átt að taka Valablis í aðeins einn dag (tvo skammta).

Til þess að fá sem mestan ávinning úr meðferðinni er mikilvægt að hefja hana strax og fyrstu einkenna verður vart. Fyrirboðaeinkenni geta verið kitlandi tilfinning, kláði eða sviði á verðandi staðsetningu frunsunnar.

LESIÐ FYLGISEÐILINN FYRIR NOTKUN

Ítarupplýsingar

Virkt innihaldsefni
Valaciclovir
Lyfjaform
Filmuhúðaðar töflur
Styrkleiki
500 mg
Magn
10 stk

Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og aukaverkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyfið áwww.serlyfjaskra.is.

VAL.L.A.2021.0015.01

Sölustaðir

Valablis er því miður ófáanlegt eins og stendur. Von er á lyfinu aftur síðar. Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.