Omeprazól 20 mg

Omeprazol Alvogen / ratiopharm

Lausasölulyf við bakflæði og brjóstsviða

  • 14 stk fást í glasi, 28 stk í þynnum.
  • Dregur úr sýruframleiðslu í maga.
  • Nauðsynlegt getur verið að taka hylkin í 2-3 daga samfellt áður en einkennin réna.

Ábending: Omeprazol ratiopharm er notað hjá fullorðnum við skammtímameðferð gegn bakflæðissjúkdómi (t.d. brjóstsviða, súru bakflæði). Bakflæði kallast það þegar sýra flæðir úr maganum og upp í vélindað, sem getur orðið bólgið og aumt. Þetta getur valdið einkennum svo sem sviðatilfinningu fyrir brjósti sem nær upp að hálsi (brjóstsviða) og súru bragði í munni (súru bakflæði).

Notkunarleiðbeiningar: Ráðlagður skammtur er eitt 20 mg hylki hylki einu sinni á sólarhring í 14 daga. Hafðu samband við lækninn ef einkennin hafa ekki horfið á þessum tíma.

Ráðlagt er að taka Omeprazol ratiopharm hylki að morgni. Hylkin skal gleypa heil með glasi af vatni. Hylkin má hvorki tyggja né mylja.

Ítarupplýsingar

Virkt innihaldsefni
Omeprazól
Lyfjaform
Magasýruþolið hart hylki
Styrkleiki
20 mg
Magn
14 og 28 stk

Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og aukaverkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyfið á www.serlyfjaskra.is.

OME.L.A.2021.0003.01

Sölustaðir

Fæst í næsta apóteki.