Carveratio
Carveratio inniheldur virka efnið carvedílól. Lyfið tilheyrir flokki alfa- og beta-blokka. Carveratio er notað til meðhöndlunar á háþrýstingi, og hjartaöng. Carveratio er einnig notað sem viðbótarmeðferð við hjartabilun.
Ábendingar:
- Háþrýstingur
- Langvinn og stöðug hjartaöng og sem viðbótarmeðferð við miðlungi alvarlegri til alvarlegri, stöðugri hjartabilun.
Frábendingar:
- Ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna.
- Óstöðug/vanmeðhöndluð hjartabilun. Skerðing á lifrarstarfsemi með klíníska þýðingu.
- Efnaskiptablóðsýring.
- AV-leiðslurof af öðru eða þriðja stigi (nema að hjartagangráður sé til staðar).
- Alvarlegur hægsláttur (<50 slög/mín). Sjúkur sínushnútur (þ.m.t. gúls- og gáttarof).
- Alvarlegur lágþrýstingur (slagbilsþrýstingur minni en 85 mmHg). Hjartalost.
- Saga um berkjukrampa eða astma.
Markaðleyfishafi: Alvogen ehf
Ítarupplýsingar
- Tegund lyfs
- C - Hjarta- og æðasjúkdómalyf
- Virkt innihaldsefni
- Carvedílól
- Lyfjaform
- Töflur
- Styrkleiki
- 6,25, 12,5 og 25 mg
- Magn
- 100 stk.
Upplýsingar um aukaverkanir, milliverkanir, varnaðarorð og önnur mikilvæg atriði má nálgast í sérlyfjaskrá - www.serlyfjaskra.is
CAR.R.2021.0001.02