Carvedilol Alvogen

Carvedilol Alvogen tilheyrir flokki alfa- og beta-blokka. Carvedilol Alvogen er notað til meðhöndlunar á háþrýstingi, og hjartaöng. Carvedilol Alvogen er einnig notað sem viðbótarmeðferð við hjartabilun.

Ábendingar: 

  • Háþrýstingur
  • Langvinn og stöðug hjartaöng og sem viðbótarmeðferð við miðlungi alvarlegri til alvarlegri, stöðugri hjartabilun.

Frábendingar: 

  • Ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna.
  • Óstöðug/vanmeðhöndluð hjartabilun.
  • Skerðing á lifrarstarfsemi með klíníska þýðingu.
  • Efnaskiptablóðsýring.
  • AV-leiðslurof af öðru eða þriðja stigi (nema að hjartagangráður sé til staðar).
  • Alvarlegur hægsláttur (<50 slög/mín). 
  • Sjúkur sínushnútur (þ.m.t. gúls- og gáttarof).
  • Alvarlegur lágþrýstingur (slagbilsþrýstingur minni en 85 mmHg).
  • Hjartalost.
  • Saga um berkjukrampa eða astma.

Markaðleyfishafi: Alvogen ehf

Ítarupplýsingar

Tegund lyfs
C - Hjarta- og æðasjúkdómalyf
Virkt innihaldsefni
Carvedílól
Lyfjaform
Töflur
Styrkleiki
6,25, 12,5 og 25 mg
Magn
100 stk.

Upplýsingar um aukaverkanir, milliverkanir, varnaðarorð og önnur mikilvæg atriði má nálgast í sérlyfjaskrá - www.serlyfjaskra.is

CAA.R.2023.0001.01

Pakkningar

VörunúmerStyrkurMagn
4205046,25 mg100 stk.
58141112,5 mg100 stk.
14062125 mg100 stk.