Allopurinol Alvogen

Allopurinol Alvogen inniheldur virka efnið allópúrinol og tilheyrir flokki lyfja sem kallast ensímhemlar, sem verka með því að stjórna hraðanum á ákveðnum efnabreytingum í líkamanum. 

Ábending: 

  • Allopurinol er notað bæði hjá fullorðnum og börnum sem langtíma, fyrirbyggjandi meðferð við þvagsýrugigt og getur einnig verið notað við öðrum kvillum sem tengjast of miklu magni af þvagsýru í líkamanum, þar með talið nýrnasteinum og öðrum nýrnasjúkdómum.

Frábending: 

  • Ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna

Markaðsleyfishafi: Alvogen ehf.

Ítarupplýsingar

Tegund lyfs
M-04 Þvagsýrugigtarlyf
Virkt innihaldsefni
allópúrinol
Lyfjaform
Töflur
Styrkleiki
100 mg, 300 mg
Magn
100 stk.

*Upplýsingar um aukaverkanir, milliverkanir, varnaðarorð og önnur mikilvæg atriði má nálgast í sérlyfjaskrá - www.serlyfjaskra.is

ALL.R.2021.0001.02

Pakkningar

VörunúmerStyrkurMagn
514949100 mg100 stk.
190715300 mg100 stk.