Ekónazól

Pevaryl Depot

Lausasölulyf til meðferðar við sveppasýkingu í leggöngum.

  • Staðbundin verkun.
  • Skeiðarstíllinn í Pevaryl Depot er forðastíll sem festir sig við slímhúð legganga og verkar þar í nokkra daga.
  • Pevaryl Depot er annarsvegar hægt að fá sem einn forðastíl eða einn forðastíl ásamt kremi.

Ábending: Pevaryl Depot er notað við sveppasýkingum í leggöngum.

Notkunarleiðbeiningar:
Skeiðarstíll 150 mg: Setjið skeiðarstílinn hátt í leggöng (með oddmjóa hlutann á undan) að kvöldi fyrir svefn. Eftir að stílagrunnurinn í Pevaryl Depot hefur bráðnað myndar hann hlaup og úr því losnar virka efnið síðan.

Krem 1%: Sama kvöld og stíllinn er notaður skal bera kremið á í kringum leggangaop og/eða á skapabarmana. Þaðan í frá skal bera kremið á 2-3 sinnum á dag. Halda skal meðferðinni áfram þar til óþægindin eru horfin og í 3 daga til viðbótar.

Athugið að einnig getur þurft að meðhöndla maka.

LESIÐ FYLGISEÐILINN FYRIR NOTKUN.

Ítarupplýsingar

Virkt innihaldsefni
Ekónazól
Lyfjaform
Skeiðarstíll / krem & skeiðarstíll
Styrkleiki
Stíll: 150 mg / krem: 10 mg/g (1%)
Magn
1 stíll / 1 stíll & 15 g túpa

Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og aukaverkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyfið á www.serlyfjaskra.is.

PED.L.A.2021.0003.01

Sölustaðir

Fæst í næsta apóteki.