SureSign

Hraðpróf til þáttagreiningar á eggbússtýrihormóni í þvagi

Suresign hraðpróf fyrir tíðahvörf (þvagi) er hraðverkandi ónæmispróf með litskiljun til þáttagreiningar á eggbússtýrihormóni (FSH) sem hjálpar til við greiningu á tíðahvörfum.

Við tíðahvörf hætta tíðablæðingar varanlega en vísindaleg skilgreining á þeim á sér oftast ekki stað fyrr en heilu ári eftir að tíðablæðingar hættu. Tímabilið fram að tíðahvörfum og 12 mánuðum eftir það kallast breytingaskeið. Margar konur finna fyrir einkennum á þessum tíma, þar með talið hitakóf, óreglulegan tíðahring, svefntruflanir, þurrk í leggöngum, hárlos, kvíða og skapsveiflur, tap á skammtímaminni og þreytu.

Vinsamlegast lesið fylgiseðilinn vandlega áður en prófið er framkvæmt og fylgið leiðbeiningum skref fyrir skref. Ef leiðbeiningum er ekki fylgt getur það valdið röngum niðurstöðum. Sjá nánar takmarkanir í fylgiseðli.

Framkvæmd prófsins er auðveld. Prófið er framkvæmt með því að hafa þvaglát á prófið (miðbunu) eða með því að dýfa í þvagið til þess að fá fram niðurstöðu með lituðum línum. Ef kona fær enn mánaðarlegar blæðingar skal taka prófið á fyrsta degi blæðinga en ef kona fær ekki lengur reglulegar tíðablæðingar skal taka prófið hvenær sem er mánaðar og endurtaka það svo einni viku síðar. Þegar prófið byrjar að verka getur þú tekið eftir ljósu flæði sem færist upp gluggann að T og C-merkjunum, þetta er eðlilegt. Lesið niðurstöðurnar eftir 3 mínútur. Túlkið ekki niðurstöður ef 10 mínútur hafa liðið.

Hvernig virkar prófið?

Þegar líkaminn framleiðir minna estrógen, hækkar styrkur eggbússtýrihormóns (FSH) þar sem það reynir að örva eggjastokkana til að framleiða heilbrigð egg. Þetta próf mælir eggbússtýrihormón (FSH) og getur sagt þér hvort líkaminn sé að framleiða of mikið magn af þessu hormóni vegna lægri styrks estrógens sem þýðir að líkaminn er kominn á breytingaskeið.

Það sem fylgir prófinu: Þvagpróf (2 stk) og fylgiseðill.